Ingi Björn Guðnason | föstudagurinn 15. nóvember 2024
Opin bók
Meira
Ingi Björn Guðnason | föstudagurinn 15. nóvember 2024
Ingi Björn Guðnason | þriðjudagurinn 1. október 2024
Kristinn Gauti Einarsson | mánudagurinn 27. maí 2024
Tónlistarmaðurinn Ásgeir Trausti fer einsamall um Ísland í sumar þar sem hann kemur fram á 14 tónleikum víðsvegar um landið. Tónleikaferðin hefst í Landnámssetrinu í Borgarnesi þann 27. júní og henni lýkur í Háskólabíói þann 14. september. Tónleikastaðirnir eru fjölbreyttir en Ásgeir kemur m.a. fram í Básum í Þórsmörk, á Hótel Flatey, í Bláu kirkjunni á Seyðisfirði og Hofi, Akureyri. Miðasala hefst miðvikudaginn 1. maí kl 10:00 á Tix.is. Ókeypis er inn á tónleikana í Flatey og miðar fyrir tónleikana í Básum í Þórsmörk verða seldir á staðnum.
27.06 - Landnámssetrið, Borgarnesi
28.06 - Frystiklefinn, Rifi
29.06 - Bíóhöllin, Akranesi
30.06 - Básar, Þórsmörk
02.07 - Blá kirkjan, Seyðisfirði
04.07 - Egilsbúð, Neskaupsstað
05.07 - Húsavíkurkirkja
06.07 - Hof, Akureyri
07.07 - Félagsheimilið, Blönduósi
09.07 - Edinborgarhúsið, Ísafirði
11.07 - Hótel Flatey, Flatey
19.07 - Sviðið, Selfossi
20.07 - Ásbyrgi, Laugarbakka
14.09 - Háskólabíó, Reykjavík
Kristinn Gauti Einarsson | mánudagurinn 27. maí 2024
Kristinn Gauti Einarsson | fimmtudagurinn 16. maí 2024
5. desember árið 1993 var LRÓ formlega stofnaður. Síðastliðinn desember var skólinn því 30 ára gamall.. Við fögnum því með fernum tónleikum.
17. maí verða tónleikar píanó-og söngnemenda kl 18 í Rögnvaldarsal
20. maí verða framhaldsprófstónleikar Sæunnar Sigríðar Sigurjónsdóttur kl 17 í Rögnvaldarsal
22. maí kl 17:30 verða tónleikar söngnemenda í Rögnvaldarsal
27. maí kl 18 verða framhaldsprófstónleikar Rúnu Esradóttur einnig í Rögnvaldarsal
Kennarar eru Guðrún Jónsdóttir söngkona og Margrét Gunnarsdóttir píanóleikari
Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir
Ingi Björn Guðnason | miðvikudagurinn 20. mars 2024
Ingi Björn Guðnason | mánudagurinn 4. mars 2024
Sólrisuleikrit Menntaskólans á Ísafirði hefur lengi verið stór partur af menningarlífinu á Vestfjörðum. Í ár mun leikfélag MÍ setja upp klassíska barnaleikritið Dýrin í Hálsaskógi sem allir ættu að þekkja, nemendur skólans hafa unnið hörðum höndum að því að setja upp þessa sýningu og erum við mjög spennt að sýna bæjarbúum afraksturinn.
Sýnt er í Edinborgarhúsinu á Ísafirði og leikstjóri er Birgitta Birgisdóttir.
Frumsýning 8. mars.
Ingi Björn Guðnason | fimmtudagurinn 1. febrúar 2024
Fiðlarinn á þakinu er fjörugur, fyndinn og hjartnæmur söngleikur eftir Jerry Bock, Sheldon Harnick og Joseph Stein, sem var fyrst frumsýndur á Broadway 1964. 1971 kom út vinsæl söngvamynd byggð á söngleiknum.
Ingi Björn Guðnason | laugardagurinn 11. nóvember 2023
Undanfarin ár hefur Ari Eldjárn komið til okkar í Edinborgarhúsið með svokallaða tilraunasýningu. Þessar sýningar hafa gengið svo vel að nú hefur hann tekið ákvörðun um að koma með fullmótað Áramótaskop, sem sé stærri og enn flottari sýningu! Áramótaskopið fer fram í Edinborgarhúsinu föstudaginn 8. desember kl. 19:00.
Ingi Björn Guðnason | laugardagurinn 11. nóvember 2023