Fréttir úr Edinborgarhúsinu
Edinborgarhúsið fær veglega gjöf í minningu Jóns Hallfreðs
Þann 22. nóvember 2025 fóru fram vel heppnaðir heiðurstónleikar í minningu tónlistarmannsins Jóns Hallfreðs Engilbertssonar, Halla.
Aðgangseyririnn rann óskiptur til tækjakaupa fyrir Edinborgarhúsið og í dag, 1. apríl, komu tækin í hús.
Ný stefna Menningarmiðstöðvarinnar Edinborgar
Stjórn Edinborgarhússins hefur samþykkt nýja stefnu fyrir Menningarmiðstöðina Edinborg, tímabilið 2025–2030, sem markar skýra framtíðarsýn fyrir starfsemi hússins og eflir rekstrargrundvöll þess til lengri tíma.
Tinna Ólafsdóttir ráðin verkefnastjóri
Tinna Ólafsdóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri fræðslu og viðburða hjá Edinborgarhúsinu.
Verkefnastjóri fræðslu og viðburða
Menningarmiðstöðin Edinborg á Ísafirði auglýsir starf verkefnastjóra fræðslu og viðburða.
Gjöf í minningu Jóns Sigurpálssonar
Menningarhúsinu Edinborg hefur borist höfðingleg gjöf frá hlutafélaginu Skógi ehf. Félagið er í eigu hjónanna Önnu Kristínar Ásgeirsdóttur og Gísla Jóns Hjaltasonar. Gjöfin er að upphæð 70 milljónir króna og er gefin í minningu Jóns Sigurpálssonar sem lést á síðastliðnu ári, en hefði orðið sjötugur þann 2. ágúst síðastliðinn.
