Samtal um framtíð Edinborgarhússins
Opinn stefnumótunarfundur
fimmtudaginn 22. maí 2025
kl. 16:00–18:30
kl. 16:00–18:30
Stjórn Edinborgarhússins hefur hafið vinnu við að móta skýra stefnu fyrir Menningarmiðstöðina Edinborg til næstu ára.
Við bjóðum öllum áhugasömum að taka þátt í opnum stefnumótunarfundi þar sem rætt verður um hlutverk Edinborgarhússins í samfélaginu og hvernig við viljum sjá það þróast á næstu árum.
Nauðsynlegt er að skrá þátttöku HÉR.
Fundurinn er ætlaður fólki með tengsl við húsið – hvort sem þau eru fagleg, persónuleg eða samfélagsleg. Markmiðið er að safna fjölbreyttum viðhorfum og hugmyndum sem nýtast munu í áframhaldandi stefnumótunarvinnu.
Í upphafi fundar verður stutt kynning á Edinborg, starfsemi hússins og rekstri í dag. Að því loknu verða umræður og hópavinna undir stjórn Vigdísar Jakobsdóttur menningarráðgjafa. Ekki er stefnt að því að komast að einni sameiginlegri niðurstöðu á þessum fundi – heldur er markmiðið fremur að ná fram fjölbreyttum sjónarmiðum og kortleggja hugmyndir sem munu nýtast í áframhaldandi stefnumótunarvinnu. Þátttakendur þurfa ekki að undirbúa sig sérstaklega fyrir fundinn.
Samtalið fer fram í Edinborgarsal fimmtudaginn 22. maí 2025 kl. 16:00-18:30 og boðið verður upp á veitingar.
Við vonum að sem flestir sjái sér fært að mæta og taka þátt í samtalinu!
Virðingarfyllst,
Stjórn Edinborgarhússins
Staðsetning og tími: