Samband English

Þjóðlagatríó Ásgeirs Ásgeirssonar

Þjóðlagatríó Ásgeirs Ásgeirssonar heldur tónleika í Edinborgarhúsinu föstudaginn 6. maí kl. 20:00. 
 
Tríóið mun leika íslensk þjóðlög í útsetningum Ásgeirs. Á undaförnum árum hefur Ásgeir gefið út þríleik með íslenskum þjóðlögum, hljóðritaðar í Istanbul, Plovdiv og Teheran. Plöturnar þrjár innihalda sungin og ósungin lög en tríóið mun leika “instrumental” útgáfur af nokkrum af perlum íslenska þjóðlagaarfsins. Ásgeir hefur á undanförnum árum sérmenntað sig í leik strengjahljóðfæra frá Mið-Austurlöndum og Suðaustur-Evrópu og hann leika á arabíska og tyrkneska lútu, griskt bouzouki og búlgarska tambouru.
 
Með honum í tríóinu munu leika þeir Erik Qvick á slagverk og Þorgrimur Jónsson á kontrabassa.
 
Aðgangseyrir: 3.000 kr. 
Miðasala við hurðina.
 
 

Staðsetning og tími: Edinborgarsalur 6. maí kl. 20:00

© Edinborg Menningarmiðstöð
Merki DressUpGames