Kosningasýning Kristjáns Guðmundssonar
Kristján Guðmundsson
Laugardaginn 25. september 2021, sama dag og kosið verður til alþingis, opnar Kristján Guðmundsson sýningu í Gallerí Úthverfu í samvinnu við Slunkaríki á Ísafirði. Kristján opnaði fyrst sýningu í Slunkaríki á kosningadegi árið 1987 og síðan þá hefur skapast hefð fyrir því að listamaðurinn komi vestur með sýningu þegar kosið er til alþingis.
Kristján Guðmundsson (1941) hóf listferil sinn snemma á sjöunda áratug síðustu aldar. Hann varð stofnfélagi í SÚM – hópi ungra framsækinna listamanna sem vann með nýja nálgun sem þá var að ryðja sér til rúms í myndlistinni.
Hann bjó í Hollandi á áttunda áratugnum og komst þá í nánari tengsl við þá strauma og stefnur sem voru ráðandi í listheiminum á þeim tíma.
Kristján hefur búið á Íslandi síðan 1979. Hann er í hópi virtustu listamanna þjóðarinnar, list hans hefur verið lýst þannig að hún er bæði í takt við þær hefðir sem ráðið hafa ferðinni í vestrænni samtímalist á seinni hluta síðustu aldar og er jafnframt merkilegt innlegg í margbrotið tímabil abstrakt- og konsept-listar eftirstríðsáranna hér á landi.
Verk hans einkennast af einfaldri og formfastri framsetningu í bland við ljóðrænu þar sem iðulega bregður fyrir heimspekilegri nálgun og djúpri og ísmeygilegri kímni.
Hann var fulltrúi Íslands á Feneyjartvíæringnum 1993 og hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir list sína, m.a. sænsku Carnegie verðlaunin.
Sýning Kristjáns opnar kl. 16 laugardaginn 25. september og er opin fimmtudaga-föstudaga kl. 16-18 og eftir samkomulagi.
Uppbyggingarsjóður Vestfjarða og Ísafjarðarbær styrkja rekstur Gallerís Úthverfu og Slunkaríkis.
Staðsetning og tími: Gallerí Úthverfa 25.9 – 13.10 2021