Pavements og tónleikar með Reykjavík!
Dagana 12.–13. september verður boðið upp á einstaka PAVEMENTS-helgi í Edinborgarhúsinu á Ísafirði og í Ísafjarðarbíói. Tilefnið er Íslands-frumsýning nýjustu kvikmyndar leikstjórans Alex Ross Perry, PAVEMENTS, sem fjallar á ferskan og óhefðbundinn hátt um hina goðsagnakenndu indie hljómsveit Pavement. Hljómsveitin á stóran fylgjendahóp meðal rokk og indie áhugafólks á Íslandi og um heim allan og lék m.a. á þrennum tónleikum í Eldborgarsal Hörpu fyrir tveimur árum í endurkomutúr sveitarinnar 2022-2023.
Sérstakur gestur helgarinnar verður Bob Nastanovich úr Pavement, sem deilir sögum, svarar spurningum og tekur sjálfur þátt í dagskránni sem plötusnúður.
Hljómsveitin Reykjavík!, stígur á svið í Edinborgarhúsinu laugardagskvöldið 13. september ásamt hljómsveitinni Markús & The Diversion Sessions. Hljómsveitin Reykjavík! er þekkt fyrir kraftmikla tónlist og sviðsframkomu og átti magnaða endurkomu á tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég suður fyrr á þessu ári. Markús & The Diversion Sessions eru ný komnir úr hljóðveri með 5 laga EP plötu. Þetta eru fyrstu upptökur með nýjum hljómsveitarmeðlimum en margir kannast við lagið "É bisst assökunar" af plötunni The Truth The Love The Life. Á tónleikunum má eiga von á nýjum lögum af næstu plötu en einnig verða eldri lögum gefið góð skil.
Að lokum heldur Bob Nastanovich svo uppi fjörinu með DJ-setti til að loka kvöldinu.
Dagskrá helgarinnar
Föstudagur 12. september – Edinborgarhúsið
Kl. 21:00 Indie pöbbkviss og eftirpartí
Laugardagur 13. september
Kl. 16:00: Síðdegissýning á PAVEMENTS í Ísafjarðarbíói Spurt og svarað (Q&A) með Bob Nastanovich að sýningu lokinni Kvöldtónleikar með Reykjavík! og gestum í Edinborgarhúsinu DJ-sett með Bob Nastanovich til að loka kvöldinu.
Kl. 21:00: Tónleikar í Edinborarhúsinu með Reykjavík! og Markús & The Diversion Sessions og DJ Bob Nastanovich.
Einstök upplifun á Ísafirði
Áhorfendur fá einstakt tækifæri til að upplifa nýja kvikmynd Alex Ross Perry á stóru tjaldi í Ísafjarðarbíói, sem hefur starfað sleitulaust í 90 áru og er af mörgum talið eitt besta bíó landsins. Þetta er einnig einstakt tækifæri til að fá innsýn í feril Pavement frá Bob Nastanovich og njóta tónleika með Reykajvík!
Miðasala er hafin á Glaze.
Staðsetning og tími: Edinborgarhúsinu og Ísafjarðarbíó 12.-13. september