Samband English

Fyrirlestur um Gervigreind - Leiksýning

Leiksýningin Fyrirlestur um Gervigreind verður sett upp í Edinborgarhúsinu í mars. Tvær sýningar eru í boði laugardginn 26. mars, kl. 18:00 og 20:00. 

Miðasala fer fram á Tix.

Fyrirlestur um Gervigreind er leiksýning sem fjallar um verkfræðinginn Stefán sem hefur farið sigurför um heiminn með boðskap sinn um gervigreind og framtíð mannkyns. Nú er hann kominn til Vestfjarða til að fræða fólk um tækniþróun og mögulegar hættur gervigreindar. Það sem hann veit ekki er að gervigreindin er nær en hann grunar.

Leikstjóri: Annalísa Hermannsdóttir
Leikarar: Stefán Þór Þorgeirsson & Urður Bergsdóttir
Ljósahönnun: Hákon Örn Helgason

Sýningin er ekki við hæfi barna yngri en 8 ára.

Verkefnið er styrkt af Uppbyggingarsjóði Vestfjarða.

Nánari umfjöllun um verkið má finna á BB.

Staðsetning og tími: Edinborgarsalur 26. mars kl. 18:00 og 20:00

© Edinborg Menningarmiðstöð
Merki DressUpGames