Safnahúsið Eyrartúni

Fréttir og tilkynningar | 27.7.2010

Svava Björnsdóttir og Inga Ragnarsdóttir

Opna sýningu í Bryggjusal fimmtudaginn 29. júlí kl. 16.00

 

„Tíminn fer ekki, hann kemur“ (grænlenskt spakmæli)
Þessi sýning er tilraun til að tengjast framrás tímans á myndrænan hátt. Efni, rými og hreyfing er sá veruleiki sem við skynjum í dagsins önn. Það er ögrandi viðfangsefni að gera grein fyrir því hvernig tíminn tengist rýminu, hver birtingarform hans geta verið.

Í lok áttunda og byrjun níunda áratugar síðustu aldar voru Svava og Inga báðar við höggmyndanám í Listaakademíunni í München. Þar fylgdust þær náið að og síðar sem starfandi myndlistarmenn en hafa þó aldrei áður sýnt saman.

Það er því spennandi verkefni fyrir þær að stilla saman strengi í Bryggjusal Edinborgarhússins. Segja má að verk þeirra séu skyld þó efniviðurinn sé ólíkur. Myndmál þeirra er af sama bergi brotið en þær nýta sér rými, form, efni og liti hvor á sinn persónulega hátt. Verkin á sýningunni eru fyrst og fremst þrívíddarverk unnin á þessu ári.

SVAVA BJÖRNSDÓTTIR (f.1952) nam við École Nationale Supérieure des Beaux Arts í París og Akademie der Bildenen Künste í München en þaðan útskrifaðist hún 1984 með diplómgráðu. Verk Svövu er að finna á öllum helstu listasöfnum landsins, hún á einnig verk í eigu safna í Þýskalandi. Svava hefur tekið þátt í fjölda samsýninga á Íslandi og erlendis og haldið yfir tuttugu einkasýningar.

INGA RAGNARSDÓTTIR (f.1955) nam við Myndlista og Handíðaskóla Íslands og Akademie der Bildenden Künste í München og útskrifaðist þaðan 1987 með diplómgráðu. Inga hefur starfað síðan jafnt í Þýskalandi og á Íslandi og sýnt víða. Verk hennar er að finna á helstu söfnum eins og t.d. Listasafni íslands, Listasafni Reykjavíkur og í bæverska Ríkislistasafninu. Sjá nánari upplýsingar um Ingu á ingaragnarsdottir.com


Sýningin er opinn alla daga til 19. ágúst kl. 16 - 18