Safnahúsið Eyrartúni

Fréttir og tilkynningar | 13.7.2010

K tríó í Bryggjusal 16. júlí - kl. 20:30

K tríó var stofnað í janúar 2008 og hefur spilað mikið saman síðan meðal annars á Jazzhátíð Reykjavíkur, Innipúka 2009 og öðrum viðburðum á Íslandi. Um miðjan september 2008 tók K tríó þátt í Young Nordic Jazz Comets keppninni. Tríóið stóð uppi sem sigurvegari. Í framhaldi af því spilaði tríóið stuttan norðurlandatúr meðal annars á Nasjonal Jazzscene í Osló, Rytmihäiriöklubi Helsinki, Christianshavns Beboerhus í Kaupmannahöfn, Mariehamn Jazzfestival Álandseyjum og Ylläs Jass og blús. Í byrjun árs 2009 gaf K tríó út sína fyrstu plötu. Platan fékk mjög góða dóma, m.a. 4 1/2 stjörnu í Morgunblaðinu. Síðasta sumar spilaði K tríó á North Sea Jazz í Rotterdam (stærstu innanhús jazzhátíð í Evrópu). Tríóið tók upp aðra plötu sína í desember 2009 og á hún að koma út í byrjun sumars.