Safnahúsið Eyrartúni

Fréttir og tilkynningar | 18.6.2010

LRÓ í haust

Á haustönn 2010 verður margt skemmtilegt í boði hjá Listaskólanum. Auk fastrar kennslu í tónlist (píanó, gítar og slagverk) og í dansi (klassískum listdansi frá 4 ára aldri, jass- og nútímadansi fyrir unglinga og fullorðna) verða námskeið með ísfirsku listakonunni Huldu Leifsdóttur, sem búsett er í Finnlandi.

 

Hulda verður hér í október með námskeið í flókagerð, sápugerð og japönsku bókbandi. Námskeið verða einnig í teiknun og málun, leirlist, vatnslitun, leiklist og myndlist fyrir börn, vinnukonugripunum og margt fleira. Til stendur að stofna samtök þeirra sem hafa lært vatnslitun og vilja koma saman og vinna að myndum sínum. Hægt verður að skrá sig á vefnum eftir miðjan ágúst en öllum er velkomið að senda okkur tölvupóst á edinborg@edinborg.is