Fréttir og tilkynningar | 18.6.2010
Foldarskart
Föstudaginn 25. júní verður sýningin Foldarskart opnuð í Bryggjusal. Á sýningunni má sjá ýmis verk Hörpu Jónsdóttur unnin á árunum 2008-2010.
Íslensk náttúra hefur veitt Hörpu Jónsdóttur innblástur við gerð verka sinna. Viðkvæmur smágróður, fjörusteinar og birtan við hafið, endurspeglast í hlutum sem eru fínlegir og grófgerðir í senn.
Verkin eru öll úr íslenskri ull og útsaumuð ýmist með bómull eða hörþræði.
Harpa er kennari, rithöfundur og áhugaljósmyndari. Hún var bæjarlistamaður Ísafjarðarbæjar árið 2002. Harpa hefur fengist við hannyrðir og textílvinnu frá barnæsku og haustið 2009 sigraði hún í keppninni “Þúsund frábærar húfur”, eða “1000 Fabulous Knit Hats” á vegum útgáfufélagsins Rockport Publishers.
