Fréttir og tilkynningar | 14.6.2010
Vestfjarðamynd Guðlaugs Rósinkranz sýnd á Þjóðhátíðardaginn
Menningarmiðstöðin Edinborg í samvinnu við Kvikmyndasafn Íslands sýnir í Edinborgarsal - Vestfjarðarmynd - Guðlaugs Rósinkarz frá 1950. Vegna fjölda áskorana verður myndin sýnd aftur Þjóðhátíðardaginn 17. júni n.k. klukkan 17:00 (Aðgangur ókeypis).
Oddur Pétursson mun kynna myndina og lýsa því sem fyrir augu ber.
Kvikmyndir úr fórum Kvikmyndasafnsins hafa reynst vinsælt efni og hafa vakið áhuga á varðveislu gamals efnis ekki síst þegar það tengist æskustöðvum eða heimabyggð gesta safnsins í safnabíóinu. Safninu hefur borist fjöldi mynda sem teknar eru á ýmsum stöðum á landinu og á ýmsum tímum sem áhugavert er að skoða. Ekki er endilega um að ræða tilbúnar, talsettar myndir heldur í flestum tilfellum þögular, óklipptar myndir sem áhugamenn hafa tekið til heimanota eða til sýninga hjá félagasamtökum.
Guðlaugur Rósinkranz fyrrum Þjóðleikhússtjóri stóð fyrir töku á myndum á Vestfjörðum í kring um 1950. Í myndinni, sem sennilega er tekin af Kjartani Ó. Bjarnasyni, er víða komið við og sýndar myndir frá ýmsum kaupstöðum, bæjum og menningarstofnunum. Þar má meðal annars sjá unglingaheimilið fyrrverandi í Breiðuvík, frá Núpi í Dýrafirði, Héraðsskólanum í Reykjanesi, Kirkjubóli í Bjarnardal, Þingeyri ofl. stöðum. Þá bregður fyrir merkilegum myndum af vegagerð eins og staðið var að henni á þessum tíma, vélsmiðju Guðmundar J. Sigurðssonar á Þingeyri, myndum af fráfærum og stórmerkilegum myndum af mjólkurflutningum á sjó. Þá sjást í myndinni ýmsir nafnkunnir menn, s.s. prestarnir Sigtryggur
Guðlaugsson og Eiríkur Eiríksson og skáldið Guðmundur Ingi Kristjánsson. Einnig eru myndir frá heimsókn Ásgeirs Ásgeirssonar, forseta, til Vestfjarða árið 1951.
Stjórnandi: Guðlaugur Rósinkranz.
Ísland (um 1950). DVCAM
Kvikmyndataka: Kjartan Ó. Bjarnason
Lengd: 73 mín, litur. - Þögul mynd
