Safnahúsið Eyrartúni

Fréttir og tilkynningar | 3.6.2010

Sönglagakeppni Vestfjarða

Úrslitakvöld Sönglagakeppni Vestfjarða verður haldið föstudagskvöldið, 4. júní, í Edinborgarsal. Fjórtán lög keppa til úrslita sem valnefnd valdi úr ríflega 50 innsendum lögum. Lögin verða flutt af jafnmörgum flytjendum.

Miðar á keppnina verða aðeins seldir í forsölu, en hún er hafin hjá Magnúsi Hávarðarsyni í síma 456-7055 eða 849-2006. Eins má senda pöntun á netfangið info@songvakeppni.is þar sem taka skal fram nafn þess er pantar, miðafjölda og gsm símanúmer. Miðaverð er 5.900 kr. fyrir keppnina, smáréttaveitingar og dansleik sem haldinn verður í kjölfar keppninnar, þar sem stórhljómsveit keppninnar undir stjórn Hrólfs Vagnssonar, ásamt söngvurunum Benna Sig. og Bigga Olgeirs leikur fyrir dansi. Eins má gera ráð fyrir að einhverjir flytjendur keppninnar blandi sér í stuðið á ballinu. Kynnar kvöldsins verða Elfar Logi Hannesson leikari og Guðný Sóley Kristinsdóttir snyrtifræðingur og meðal fimm dómnefndarmanna er sjálfur Villi Valli.

Áhorfendur munu velja uppáhaldslag sitt í kosningu og mun það hljóta áhorfendaverðlaunin. Dómnefndin velur svo sigurlagið í lok kvöldsins. Strákarnir Við Pollinn sjá um allar veitingar og munu þeir bera gestum smáréttaveitingar í hléi. Borð verða dúkuð, með kertum og blómum. Athygli er vakin á snyrtilegum klæðnaði á bæði keppni og dansleik og að sætaframboð er takmarkað við 130-150 manns við borð.

Allar nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri Sönglagakeppni Vestfjarða:
Magnús Hávarðarson
Sími: 456-7055
GSM: 849-2006
Netfang: info@songvakeppni.is