Fréttir og tilkynningar | 3.6.2010
Norskir listiðnaðarmunir
Í Bryggjusal 4. - 24. júní eru sýndir „Konstruksjoner“, norskir listiðnaðarmunir. Þetta er farandsýning í eigu norska utanríkisráðuneytisins og á sýningunni eru verk eftir 17 listiðnaðarmenn: Anne-Gry Løland, Anne Lene Løvhaug, Aslaug Juliussen, Astrid Løvaas og Kirsten Wagle, Erlend H. Leirdal, Franz Schmidt, Håvard Larsen, Inger Johanne Rasmussen, Ingrid Larssen, Inger Blix Kvammen, Kristin Sæterdal, Lars Sture, Lillian Dahle, Liv Blåvarp, Marianne Moe og Marit Helen Akslen.
Sýningin er opin daglega kl. 16.00 - 18.00 en á opnunardegi sýningar 4. júní kl. 17.00 býður sendiherra Noregs Margit F. Tveiten til móttöku í tilefni af ræðismannaskiptum á Ísafirði. Nýr kjörræðismaður Noregs verður Birna Lárusdóttir en hún tekur við af Sverri Hestnes.
