Fréttir og tilkynningar | 19.5.2010
Skúli mennski og Grjót - 26. maí - kl. 21:00
halda tónleika í Edinborgarsal. Skúli og hljómsveit kynna nýútgefna plötu í bland við annað vel valið efni. Hljómsveitina eru: Dagur Bergsson á hljómborð, Halldór Gunnar Pálsson á gítar, Óskar Þormarsson á trommur, Una Sveinbjarnardóttir á fiðlu og Valdimar Olgeirsson á bassa.
Uppistandarinn Ari Eldjárn hitar salinn upp með bröndurum og sprelli úr ýmsum áttum. Ari er mörgum að góðu kunnur úr Mið-Ísland grínhópnum og er af mörgum talinn besta Bubba Morthens eftirherma á Norðurlöndunum. Kynnir kvöldsins er Mugison sem hefur fram til þessa flutt eigin tónlist við góðan orðstír.
Forsala miða fer fram í versluninni Orkusteini á Ísafirði og stendur yfir fram að lokun miðvikudag 26. maí og fást miðarnir ódýrari í forsölu.
