Safnahúsið Eyrartúni

Fréttir og tilkynningar | 18.5.2010

Eivør Pálsdóttir 25. maí kl. 20:00

Eivør Pálsdóttir heldur tónleika þriðjudaginn 25. maí og kynnir plötu sína LAVRA. 
Miðasala hefst við dyrnar í Edinborgarhúsinu kl. 18 á þriðjudag en tónleikarnir hefjast kl. 20.
Eivör verður með hörku band á bak við sig og flytur lög af nýju plötunni. Auk Eivarar eru Benjamin Petersen á rafgítar, Mikael Blak á raf- og kontrabassa og Høgni Lisbert á trommur og slagverk .

 

Nýja breiðskífan, LARVA, er sjöunda hljóðversplatan sem Eivør sendir frá sér og hér sýnir hún á sér nýjar hliðar með því að fjarlægjast "folk" stíl síðustu ára og hella sér í tilraunakenndara og hrárra sánd.
Afraksturinn er mögnuð plata sem nær ómögulegt er að skilgreina því áhrifin koma svo víða að; má þar nefna indítónlist, popp, trip-hop, ambient, rokk, tekknó, acid djass og klassíska tónlist. Eivør vann plötuna með sveitinni sem kemur fram á tónleikunum og upptökustjóranum Jens L. Thomsen, allt saman gamlir vinir og nánir samstarfsmenn í gegnum árin.