Safnahúsið Eyrartúni

Fréttir og tilkynningar | 17.5.2010

Hellisbúinn

Verður á Ísafirði 12. júní kl. 19:00 í Edinborgarsalnum.

 

Sjá:www.hellisbuinn.is/

Sýningum á Hellisbúanum í Reykjavík lauk föstudaginn 30. apríl með látum. Tvær sýningar voru þetta kvöld og eitt þúsund manns ætluðu að rifna úr hlátri.
Vegna fjölda áskorana hefur nú ákveðið að fara í túr um landið. Hellisbúinn verður á ferðinni 5. - 19. júní og heimsækir sex bæjarfélög. Dagskráin er svona:

5. júní: Bíóhöllin, Akranesi
10. júní: Klif, Ólafsvík
11. júní: Félagsheimilið, Búðardal
12. júní: Edinborgarhúsið, Ísafirði
18. júní: Valaskjálf, Egilsstöðum
19. júní: Valhöll, Eskifirði

Aðeins er um eina sýningu að ræða í hverju bæ og því mjög takmarkað magn miða í boði. Miðasalan er hafin og fer fram á Miði.is.
Jóhannes Haukur Jóhannesson er Hellisbúinn, Rúnar Freyr Gíslason leikstýrði og Sigurjón Kjartansson sá um að þýða og staðfæra.

Heimasíða Hellisbúans
Hellisbúinn á Bravó.is
Hellisbúinn á Facebook