Listaskóli LRÓ | 29.10.2007
Teiknisamkeppni Pennans og LRÓ
Teiknisamkeppni Pennans og LRÓ var til lykta leidd með verðlaunaafhendingu sunnudaginn 28. okt. Alls bárust 148 myndir að þessu sinni. Dómnefnd skipuðu Orri Hjaltason, Laufey Eyþórsdóttir og Sigríður Steinunn Axelsdóttir. Umsjón og skipulag var í höndum Péturs Guðmundssonar.
Niðurstöður hennar voru þessar:
Í flokki 13-15 ára varð hlutskarpastur Kjartan Geir Karlsson, í öðru sæti Dagný Ósk Axelsdóttir og í 3. sæti Hjálmar Forni Sveinbjörnsson.
Í flokki 9-12 ára hlutu verðlaun þær Sóley Ebba 1. verðl., Elísabet Magnúsdóttir 2. verðl. og 3. verðl. Laufey Hulda Jónsdóttir.
Í flokki 6-8 ára urðu hlutskörpust þau Ágúst Helgi Hafsteinsson 1. sæti, Karolína Switalska 2. sæti og Vilmar Hallgrímsson 3. sæti.
Í yngsta flokki hlutu verðlaun þau Hugi Hallgrímsson 1. sæti, Teodóra Dragolojvitc 2. sæti og 3. sæti Júlíana Lind.
Myndirnar allar, sem voru gerðar eftir þemanu sumarfríið, eru allar á vegg í salnum á 2. hæð Edinborgarhússins. Ekki auðnaðist öllum að sækja sín verðlaun og er þeim bent á að vitja þeirra í verslun Pennans við Silfurtorgið á Ísafirði. LRÓ og Penninn þakkar öllum sem tóku þátt og hvetur alla listamenninu ungu til að halda áfram að túlka lífið og tilveruna með listrænum tilþrifum, eins og þeir gerðu svo sannarlega í þessari keppni.

