Tinna Ólafsdóttir | miðvikudagurinn 4. mars 2026
Litli leikklúbburinn: Dansnámskeið með söngleikjaþema
Meira
Tinna Ólafsdóttir | miðvikudagurinn 4. mars 2026
Ingi Björn Guðnason | föstudagurinn 27. febrúar 2026
Menningarmiðstöðin Edinborg og Listaskóli Rögnvaldar Ólafssonar bjóða upp á sex skipta listasmiðju fyrir börn á aldrinum 6-12 ára í samstarfi við Vekjandi listmeðferð.
Tinna Ólafsdóttir | mánudagurinn 16. febrúar 2026
Tinna Ólafsdóttir | miðvikudagurinn 4. febrúar 2026
Litli leikklúbburinn sýnir sprenghlægilega gamanleikritið Beint í æð í Edinborgarhúsinu í febrúar.
Ingi Björn Guðnason | þriðjudagurinn 9. desember 2025
Ari Eldjárn býður þér að kveðja með sér árið sem er að líða með ógleymanlegri uppistandssýningu sinni Áramótaskop!
Ingi Björn Guðnason | fimmtudagurinn 27. nóvember 2025
Litli leikklúbburinn býður upp á fyndna og hjartnæma jólastemningu í Edinborgarhúsinu á Ísafirði með leikriti Snæbjörns Ragnarssonar: Lápur, Skrápur og jólaskapið.
Ingi Björn Guðnason | miðvikudagurinn 26. nóvember 2025
Khemeia er nýtt og spennandi dúó þar sem gítarleikarinn Mikael Máni og ítalska söngkonan Aurora Machese leiða saman hesta sína. Tónlist þeirra er einföld í grunninn – gítar og rödd – en saman skapa þau heillandi hljóðheim þar sem íslenskur kuldi mætir hlýju Miðjarðarhafsins.
Ingi Björn Guðnason | laugardagurinn 15. nóvember 2025
Þann 22.nóvember 2025 eru 70 ár frá fæðingu tónlistarmannsins Jóns Hallfreðs Engilbertssonar eða Halla eins og hann var kallaður. Af því tilefni heldur fjölskylda hans heiðurstónleika í Edinborgarhúsinu á Ísafirði þann dag kl. 21:00.
Ingi Björn Guðnason | mánudagurinn 10. nóvember 2025
Ingi Björn Guðnason | mánudagurinn 27. október 2025
Laugardaginn 1. nóvember opnar myndlistarmaðurinn Pétur Guðmundsson sýningu í Gallerí Slunkaríki í Edinborgarhúsinu og Gallerí Úthverfu. Sýningin í Úthverfu opnar kl. 13:30 og í Slunkaríki Edinborgarhússins kl. 14:00. Öll hjartanlega velkomin!
Tilefnið er tvenns konar, 40 ára afmæli Slunkaríkis og 75 ára afmæli listamannsins. Alls mun sýningin telja 75 myndir af ýmsu tagi, allt frá málverkum til teikninga, auk myndskreyttra limra. Sýningin er sölusýning.
Pétur Guðmundsson er ísfirskur myndlistarmaður og einn af stofnendum Slunkaríkis og Myndlsitarfélagsins á Ísafirði. Hann hefur haldið um 70 einka- og samsýningar hér heima og erlendis.
Sýningin er opin alla virka daga frá kl. 16:00-18:00 og um helgar frá 14:00 - 16:00, eða eftir samkomulagi í síma 866-5256 (Pétur) eða 456-5444 (Ingi).